08desember

Tónleikar, tívolí og kósýheit

Góðan daginn!Cool

Ákvað að skella inn bloggi þar sem að ég átti ótrúlega skemmtilega helgi!Wink

Á fimmtudaginn fór ég að kaupa jólagjafir og er búin að afgreiða alla nema kærastann... er hálf lost hvað er hægt að gefa manninum þannig að ætla að kíkja á þetta í næstu viku... hef bara til 21. þar sem planið er að skiptast á gjöfum áður en ég fer til Íslands. Ekkert hægt að redda sér á síðustu stund! Sem er sko "my thing"!Tongue out Allavega eftir jólagjafainnkaup með Halla þá dreif ég mig til Kristrúnar þar sem að við ætluðum að borða pizzu og horfa á heimildarmyndina um Britney Spears. Skemmtum okkur konunglega og sötruðum smá "Undur-Röggu" sem er rauðvín (heitir reyndar Undurraga en það er annað mál)!Laughing Síðan horfðum við á Love and Basketball og ég held ég hafi ekki ítrekað það nóg á meðan við sáum myndina hversu mikið ég elska þessa mynd! Síðan hélt ég heim á leið, en lenti í svakalegu metroveseni, tók einn og hálfan tíma að komast heim frá Fredriksberg... Kennir manni að vera á hjóli no matter what!Undecided



Á föstudaginn var skóli og kom svo heim í kósý með kæró. Síðan var undirbúningur fyrir kvöldið hafinn... tiltekt, en þar sem það var ekki alveg í mér að taka til akkúrat þarna lenti vinnan á grey Morten. Síðan skellti ég mér í sturtu og byrjaði að hafa mig til. Svo kom Kristrún og þá varð fjandinn laus, eins og alltaf þegar við ætlum saman út á lífið!Innocent Gerðum okkur klárar en þá bankaði Liv á og bauð okkur í mat. Það var sko vel þegið þar sem við vorum ekki einu sinni búnar að hugsa það langt að við þyrftum að borða fyrir kvöldið! Hamborgarar í heimabökuðu brauði... nammi namm!Tongue out Síðan fórum við upp í TV stue þar sem að við spiluðum Sing Star! Ótrúlega gaman og mér tókst meira að segja að vinna alla (Kristrún vann samt nokkrum sinnum!)!Laughing Síðan var klukkan orðin margt og kominn tími til að skella sér upp í skóla í partýið. Náðum rétt svo 5 mínútur í eitt, en dyrnar loka á slaginu eitt. Heppnar! Við týndum hvor annarri til skiptis en skemmtum okkur konunglega, tala nú ekki um þegar Spice Girls var sett á fóninn!Wink Síðan var kominn tími til að halda heim á leið en ákvað að fara heim til Morten.


Daginn eftir vaknaði ég með örfáa smiði í höfðinu og fannst því ótrúlegur lúxus að geta horft á sjónvarp uppi í rúmi! (Já, ég er ennþá sjónvarpslaus heima hjá mér.) Lá þarna í leti þar til Morten kom heim úr vinnunni og fór ekki heim fyrr en upp úr sjö. Aldrei gaman að taka strætó heim í djammgallanum frá deginum áður!Undecided Dreif mig í sturtu um leið og ég kom heim og fór til Michael, en við ætluðum að fá okkur fast food og horfa á mynd. Kvöldið fór því í kósý leti og allt of mikið át (upphitun fyrir jólin?).

Vaknaði síðan í gærmorgun og lá í kósý fram að hádegi þar sem ég fór niður í Netto og keypti inn fyrir vikuna. Kom svo heim og þá var planið orðið að ég ætti að fara með á tónleika á Fredriksberg og síðan í Tivoli og út að borða með Morten og foreldrum hans. Tónleikarnir voru flottir, sex gospelsöngvarar að syngja jólalög í bland við annað. Einn af þeim var stóri bróðir hans Morten sem ég hitti í fyrsta skipti, er núna búin að hitta alla fjölskylduna! Eftir tónleikana fórum við síðan í Tivoli þar sem við fengum okkur að borða og röltum um. Ekkert smá kósý þarna inni alltaf hreint!Smile Að sjálfsögðu kíktum við á jólaálfana í Nissekøbing og kíktum í jólabásana. Eftir þetta fórum við heim til Morten og horfðum á mynd.


Í morgun vaknaði ég svo og dreif mig ekkert smá svo ég myndi ná í skólann á réttum tíma. Hafði klukkustund til að koma mér frá SV og heim og síðan út á Islands Brygge. Náði því en var síðan kennarinn ekki veikur! Týpískt, hefði getað sofið út!Yell

Allavega...  ætla að kúra smá og síðan í jólastússerí!Smile Er að fara á eins konar julefrokost á morgun með Sunnefu og Kristrúnu ásamt kærustum (greyin hafa ekki fengið að vera með hingað til) og eftir það förum við á Mugison tónleika í Christianiu! Hlakka ekkert smá til! Síðan á miðvikudaginn er julefrokost með hold-inu mínu frá í fyrra og síðan er kollegi julefrokost á laugardaginn... Ó mæ!Embarassed

En hafið það gott krúttin mín!Kiss

Knús

Ragga
08. desember 2008 klukkan 09:48
Ragnheiđur Bárđardóttir
5 athugasemdir
02desember

Medialog?

Góðan daginn... já hann hefur svo sannarlega verið góður vegna þess að mér tókst að laga mistök gærdagsins.

Mistök... ójá! Stór mistök!

Skilaði synopse loksins í gær með því að senda email til kennarans míns. Ótrúlega ánægð með árangurinn opnaði ég hvítvínsflösku og naut þess að borða burritos sem Henrik og Michael elduðu. Lífið var yndislegt. Þar sem 1. desember þá horfðum við að sjálfsögðu á jóladagatalið: The Julekalender. Bara róleg, það er fyrir fullorðna. En um leið og það var búið var gleðin á enda...

Kristrún hringdi í mig með þær fréttir að hún hafi fengið email frá kennaranum okkar. Við áttum að skila synopsen á skrifstofu skólans! Takk fyrir og gleðileg jól! Hvítvínsvíman mín hvarf um leið. Dreif mig niður á herbergi til að athuga í tölvuna hvort ég hafi líka fengið póst. Jú, jú... Hr. Bang þakkaði mér fyrir synopsen og spurði hvort ég hefði ekki örugglega skilað líka á skrifstofuna.

Nei það hafði ég ekki gert!!! Hélt þetta væri eins og önnur ritgerðarskil hafa verið hjá mér síðustu tvær annir, þ.e.a.s. skila beint til kennarans. Orðum það bara þannig að ég var byrjuð að plana það að fá mér fulla vinnu, taka stærðfræðiáfanga svo ég næði upp á B-niveau og færi síðan að læra medialogi í haust. Finnst það nefnilega ótrúlega spennandi fag.

Mætti síðan í morgun upp á skrifstofu um leið og hún opnaði... það var ekkert mál að skila þar sem að það var ekki búin að fara í gegnum skilabunkann. Hjúkket!

Síðan valdi ég fög fyrir næstu önn og talaði við námsráðgjafann í sambandi við að skrá mig í kvantitativ og strukturet information (tölfræðikjaftæðið). Hún var svo hugguleg að hún bauð mér í kaffi/te næsta þriðjudag. Öllum Íslendingum sem er að læra sagnfræði er boðið því þeim langar að heyra okkar upplifun á að læra hérna.

Annars er lítið að frétta. Var að vinna á laugardaginn sem þjónn á Brøndby stadion. Ætla að athuga hvort ekki sé möguleiki á meiri vinnu... helst inni í Köben þar sem að það tekur svo langan tíma að fara svona út á land!

Síðan er kærastinn fluttur til Köben... bara gleði og heimsótti hann einmitt á sunnudagskvöldið, flott herbergi með öllu... Já ég er aftur komin í húsnæðisleit... þrái að finna eitthvað undir 4000 krónum á mánuði með öllu innifalið.

Annars... fer líklegast að lúlla smá þegar ég kem heim... Svaf næstum ekkert í nótt vegna stress og mögulegra breytinga á námi.

Bless í bili

Ragga
02. desember 2008 klukkan 10:46
Ragnheiđur Bárđardóttir
1 athugasemd
21nóvember

Úti er alltaf ađ snjóa...

Góðan daginn!

Þetta er búið að vera frekar súr dagur, eins og eiginlega undanfarnir dagar. Orðið hálfþreytt. Og til að bæta gráu ofan á svart er byrjað að snjóa! Já af því veðrið var greinilega ekki nógu leiðinlegt fyrir!

Mætti í metode í morgun og skilaði leiðinda verkefninu mínu! LOKSINS! Búin að basla við þetta helvíti undanfarnar vikur og náði loksins að skila, bara 10 dögum of seint! Er reyndar búin að vera slöpp-veik-slöpp til skiptis undanfarið og það hafði talsverð áhrif! Mætti síðan í tímann þar sem við áttum að sjá bíómynd um Midsommerkrisen 1941 og getið hvað... Var ekki helvítis myndin á sænsku! Hvílíkt hrognamál... enda fór ég bara að "hanna" föt... Ætti kannski að snúa mér frekar að tískuhönnun en sagnfræði???

Síðan kíkti ég á bókasafnið og reyndi að lesa smá í "The Roman Triumph" og gafst upp vegna svengdar, er þess vegna komin heim og er að hita mér kínarúllur. Ætla síðan að vaska upp og gera smá kósý hérna svo að ég geti einbeitt mér um helgina sem fer í að klára synopse um Romersk militarisme fra republik til monarki! Já stuð á mér! Uppkasti á að skila á mánudaginn og ég vona að það verði bara nógu gott svo ég geti slakað á næstu helgi! Þrái afslöppun!

1. desember semsagt, þá mun ég fagna 90 ára fullveldi Íslands og ritgerðarskilum... Vá hvað ég hlakka til!

Mamma og pabbi kíktu til mín í heimsókn síðustu helgi, en það var lítið annað gera en að borða og spila... Ekkert smá kósý og gaman að fá þau í heimsókn. Byrjaði einmitt daginn í dag á að fá mér appelsín, já maður leyfir sér fínheit svona af og til.

Í kvöld er síðan spurning hvað ég geri. Plan eitt er að lesa, en er búin að gera svo mikið af því undanfarið að ég held að pása væri vel þegin. Síðan er spurning um að kíkja og fá sér einn bjór á fredagsbarnum í skólanum... Kemur allt í ljós.

Allavega, verður lítið um skemmtilega fréttir héðan fyrr en 1. desember... Desværre!

Góða helgi!

Knús

Ragga
21. nóvember 2008 klukkan 13:14
Ragnheiđur Bárđardóttir
2 athugasemdir
09nóvember

Smá sunnudagsblogg

Góða kvöldið!

Ákvað að skrifa smá færslu áður en ég dembi mér í verkefni í metode sem gæti ekki verið leiðinlegra, er eiginlega handviss.

Helgin er eiginlega búin og leið ekkert smá hratt! Á föstudaginn elduðum við Morten með Evu og Sigge. Mjög kósý hjá okkur í fínu, fínu íbúðinni minni sem ég var búin að taka svo vel til í. Kjúklingur og franskar ásamt bernaisesósu var á matseðlinum og við borðuðum okkur pakksödd. En föstudagurinn var sko enginn venjulegur dagur þar sem það var J-dag... þ.e.a.s. Tuborg Julebryg kemur á götuna klukkan eina mínútu í níu. Ég, Morten, Sigge, Henrik, Andrew og Michael skelltum okkur því á Wall Street, þar sem átti að vera eitthvað húllumhæ í sambandi við daginn. Vorum mætt tíu mínútur í níu og það var gjörsamlega troðið... og eins og vill vera þegar staðir eru troðnir: Óbærilega heitt! Fengum okkur bjór (þar sem ekki var hægt að fjárfesta í jólabjórnum fyrr en 20:59 og biðum spennt. Klukkan eina mínútu í níu varð allt vitlaust. Jingle Bells var spilað og blár jólasveinn (þ.e.a.s. í bláa Tuborg outfittinu) mætti sönglandi með kassa af jólabjór og hóf að deila út til fólks. Morten var svo heppinn að fá einn og fékk mín að njóta góðs af því. Morten fékk síðan límdan á sig límmiða þar sem stóð "Jeg er mest til piger" og síðan límdi sami gæji á brjóstið á mér (já ekkert á bolinn, bara reif hann niður takk fyrir!) "Her må der drilles"... Var bara fyndið! Síðan kom Kristrún og við fengum okkur einn saman áður en við drifum okkur heim í fataskipti og stelpu-hygge, en strákarnir voru skildir eftir niðri í bæ.

Spice Girls var sett á fóninn og við gerðum okkur til eins og okkur einum er lagið. Þegar Morten kom síðan blöskraði honum hvernig okkur hafði tekist að "rústa" svona miklu á svona stuttum tíma. Síðan drifum við okkur upp í skóla þar sem Børgers Bodega var þemað. Hitti voða mikið af skólafélögum og síðan dönsuðum við eins og vitleysingar. Kostaði nokkra smiði í höfðinu á laugardeginum.

Þegar við drifum okkur loksins á lappir á laugardaginn var farið í Netto og allt keypt sem var óhollt á einhvern hátt. Síðan gerðum við okkur nachos og chilluðum. Þá var komið að því að fara í bíó, en við skelltum okkur á nýju James Bond myndina, Quantum of Solace. Hún var bara ágæt, er ekkert sérfræðingur í Bond en skemmti mér ágætlega. Fyrir myndina gengu skúrkarnir úr fyrri myndum um og gerðu fólki lífið leitt (láta því bregða og svona) en svo tók sjálfur Bond við miðunum okkar þegar við gengum inn í salinn.

Morten fór svo snemma í morgun þar sem hann var að fara að vera tilraunadýr fyrir einhverja tónlistarnema. Ég svaf bara lengur og skellti mér síðan í aerobic klukkan tvö og fannst ég vera geggjað góð! Síðan er ég búin að slaka á en þarf nú að klára þetta leiðinda verkefni...

Hafið það gott!

Knús

Ragga
09. nóvember 2008 klukkan 18:16
Ragnheiđur Bárđardóttir
4 athugasemdir
05nóvember

Thad er kominn nóvember

Thad er sko engin spurning um ad thad sé ad koma vetur hér í Danaveldi. Ordid frekar kalt úti og myrkur eftir klukkan fimm á daginn. Thar ad auki er brjálad ad gera í skólanum, held samt ad "brjálad" sé understating it. Er ad vinna í metodeopgave sem ég er viss um ad hafi verid samid í helvíti thad er svo leidinlegt, er ad lesa á milljón í Romerriget thar sem ég á ad skila synopsis 1. desember! Oh my god!!! Er eiginlega ad verda andlega búin á thví... sé ekki fyrir endann á thessu lærdómshelvíti! Verdur samt vonandi skárra thegar ég er búin med thetta "blessada" metodeopgave... verd alltaf hálfthunglynd thegar ég er ad vinna thessi verkefni. Hlakka samt eiginlega til ad skrifa synopsis sem mun heita: Romersk militarisme fra republik til monarki.

Helgin var ágæt thrátt fyrir ad allt hljómi grátt og ömurlegt hérna. Á föstudeginum fór ég til Sunnefu og vid ásamt Kristrúnu og Bassa fengum okkur smá í glas ádur en vid skvísurnar skelltum okkur yfir á "Nýárs"-fredagsbar uppi í skóla. Eftir thad kíktum vid Kristrún adeins nidur í bæ thar sem vid hittum Miu vinkonu. Bara skemmtilegt stelpukvöld, ég hitti m.a. Ástrala sem ég spjalladi mikid vid (elska ástralskan hreim). Laugardagurinn fór í ad setja upp skraut fyrir Halloween sem var haldid hátídlegt um kvöldid. Ég var dúkka, sem var vidbjódslega creepy... Var eiginlega hálfhrædd vid sjálfa mig. Ætladi ad vera edrú en Mikkel tók thad sko ekki í mál og reyndi ad hella í mig.

Sunnudagurinn fór sídan í smá tiltekt og svo pizzaát og videogláp. Svo kom Morten og vid höfdum thad huggulegt. Á mánudagskvöldid fórum vid í göngutúr og sídan á Den Sorte Gryde thar sem vid fengum HEIMSINS STÆRSTU HAMBORGARA! Án djóks, var búin med 1/6 af mínum og var pakksödd! Sídan leigdum vid The Heartbreak Kid... sem er alveg hægt ad mæla med.

Jæja... ætla skella mér aftur í helvítid!!!

Kvedja

Ragga
05. nóvember 2008 klukkan 12:40
Ragnheiđur Bárđardóttir
1 athugasemd
24október

Langt blogg... međ myndum!:)

Góðan daginn, úr rigningunni í Kaupmannahöfn.Wink

Þetta er búið að vera talsvert viðburðarrík vika, ótrúlega kom það mér á óvart samt... kannski af því að ég ætlaði mér sko að slaka á og læra. Hmmm... Kannski þegar maður planar að skemmta sér endar maður á að slaka á og læra?

Allavega, Bárður Ingi frændi hringdi í mig á þriðjudaginn og við mæltum okkur móts. Dóra kærastan hans var með í för og við ákváðum að skella okkur í Fields, ekki farið þangað síðan ég í alvöru talað, ég man það ekki!

Þar fengum við okkur að borða og kíktum í búðir. Síðan tókum við metroinn niður í bæ þar sem að við fórum á Hviids og fengum okkur tvo gráa, enda hefð þegar við Bárður hittumst í Köben. Síðan fórum við á Studenterhuset (því bjórinn er ódýrari þar fyrir fátæka námsmenn) og enduðum svo úti að borða á Jensens Bøfhus. Þar sem þetta hafði ekki verið dagurinn hans Bárðar (blóðnasir í Fields og næstum kafnaður á Jenna) tókum við strætó heim um tíuleytið.

Þegar ég kom heim kom Mikkel svo í heimsókn og bauð mér heim til sín (semsagt upp) í drykk af því að hann hafði verið í Þýskalandi að versla inn meget billigt sprut! Ég þáði drykkinn, enda ennþá pínu hress og við enduðum á því að skemmta okkur konunglega yfir gömlum Disney lögum á YouTube og síðan að stríða íslenskum vini hans Mikkels, sem fattaði engan veginn hvernig Mikkel væri orðinn svona góður í íslensku!

Miðvikudagurinn fór í leti þar sem að það var frí í Rómarsögu.

Í gær var svo mjög skemmtilegur dagur í tvöföldum Rómarsögutíma. Fyrri tíminn fór í að tala um texta sem við höfðum lesið og í þeim seinni fengum við fyrirlestur frá bandarískum prófessor frá Brown University, sem er sérhæfður í grískri og rómverskri sögu... og vinir mínir, það er sko sjaldgæft! Hann hélt spennandi fyrirlestur um Tacitus og texta hans og það besta var að hann hélt hann á ensku! Vá hvað það var nice!!! Tók samt glósurnar mínar á dönsku, ótrúlegt en satt! Þegar hann var að svara spurningum teiknaði ég svo þessa fínu mynd af honum:


Prófessor Kurt Raaflaub í minni útgáfu.

Og svo mynd af honum sem ég fann á netinu... Á ég ekki framtíðina fyrir mér í listum?

Eftir tímann sátum við Kristrún og Sunnefa og spjölluðum, en síðan höfðum við hangið of lengi svo kennarinn hélt við ætluðum að spyrja hann út í synopsis sem við eigum að skila 1. desember. Jú, við gátum nú alveg spurt og báðum hann um að velja efni fyrir okkur. Erfiðasta við að skrifa ritgerðir finnst mér er að velja efni og finna heimildir, mjög crucial í sagnfræðinni. Hann benti mér á að skrifa um The Roman Triumph og benti mér á samnefnda bók eftir Mary Beard. Stelpunum leist aftur á móti ekkert á hvað hann benti þeim á. En við Kristrún fórum síðan á bókasafnið til að finna þessar bækur og hvað er týpískt... Jú þessi bók er til á bókasafninu í Århus og í Odense en engu í Köben! Snyd!!! Var samt að enda við að panta hana á netinu... þannig eftir 10 daga mun ég ekki gera annað en að fara ofan í kjölinn á þessum sið og lesa þessar rúmlega 400 blaðsíður! Partý, partý!

Um átta skellti ég mér síðan yfir á Kirkegaardsvej til hennar Sunnefu en hún hafði boðið okkur Kristrúnu í köku og ódýrt rauðvín. Kakan var geggjuð og rauðvínið fínt og ótrúlega kósý bara með kerti og stelpuspjalli... á íslensku, ekki oft sem að það gerist hér á bæ! En ótrúlega huggó og við eigum pottþétt eftir að gera þetta aftur, svona semí saumaklúbbur.

Sunnefa og ég í Pimps and Hoes partýinu.

Kristrún og Morten vel stemmd í sama partýi!



Jæja... í dag var svo skóli. Eftir skóla fór ég svo í Netto og keypti helling af kjúklingaleggjum til að frysta (þarf samt eitthvað að borða úr frystinum fyrst) og núðlur og svona. Í kvöld ætla ég að elda kjúkling með frönskum og bernaisesósu fyrir kæró en hann kemur á eftir. Verður bara kósý hjá okkur... vona ég!

Síðan er síðasti dagurinn í vinnunni á morgun og við ætlum út að borða eftir á... erfitt að vera svona vinsæl í vinnunni!

Allavega, ætla að skella mér í tiltekt og byrja svo á metodeopgave númer 2 á þessari önn. Það var gott, en ekki nóg farið í kjölinn sagði Klemmi þannig að nú verð ég að spýta í lófana svo ég geti komið honum á óvart. Hann var samt ánægður með dönskuna sem verkefnið var skrifað á... Þarf að þakka Morten fyrir að hafa farið yfir þetta... Næst næ ég þessu því þetta er eins og stærðfræði: Þú þarft að sýna útreikningana til að ná, dugir ekki bara að vera með niðurstöðuna...

Allavega. Vil óska ömmu Völlu til hamingju með 91 árs afmælið og voni að hún fái yndislegan dag!

Amma og ég í maí 2007.

Sömuleiðis vil ég óska Viggu, Bárði Inga og Bjössa öllum til hamingju með BA-útskriftir á laugardaginn! Til hamingju krakkar mínir!

Vigga og ég á Tapas barnum í janúar 2008.

Jón Ívar og Bjössi í haust.

Bárður Ingi.

Annars er ég rokin upp í þvottahús...

Kveðja

Ragga



Hafdís og ég í afmælinu hennar í ágúst!

24. október 2008 klukkan 12:52
Ragnheiđur Bárđardóttir
4 athugasemdir
20október

Haustfrí

Góðan daginn!

Þetta er búin að vera meiri vikan og meira en nóg um að vera.

Ákvað það fyrir löngu að í þessu fríi yrði ekkert unnið, bara slappað af og lesið. Er þessvegna orðin mun fróðari um Rómarríkið og hef náð að slappa vel af. Bara kósý.

Á mánudeginum og þriðjudeginum var lítið annað gert en að sofa út, slaka á og síðan kíkja í ræktina. Fór í thai bo tíma á þriðjudeginum sem olli harðsperrum restina af fríinu. Uppgötvaði meira að segja nokkra nýja vöðva!

Á miðvikudeginum var ryksugað með nýju ryksugunni (já maður er orðin gömul þegar maður á eigin ryksugu!), tekið til og þvottur þveginn. Ákvað síðan að baka muffins og skinkuhorn og bauð Evu vinkonu í kaffi. Mjög huggulegt hjá okkur þar sem við borðuðum okkur pakksaddar af þessu gúmmelaði.

Síðan lagði ég upp í langferð. Já og var ekkert smá stressuð! Ferðinni var heitið til Vordingborg þar sem að mamma og pabbi hans Mortens búa. Í lestinni á leiðinni róaði ég taugarnar með að spjalla við mömmu og pabba á Skype. Síðan var komið að því... Morten sótti mig út á lestarstöð og við keyrðum í gegnum bæinn, en þau búa á býli (ef þið munið eftir "Landsbyen" þá var þetta svoleiðis gård) nokkrum kílómetrum fyrir utan. Engin dýr samt, sem betur fer... Þá hefði ég sko beilað!

Það var tekið vel á móti okkur, fengum te og köku og spjölluðum við mömmu hans á meðan pabba hans var að leggja flísar. Bara mjög notalegt en litla hjartað titraði af stressi samt sem áður.

Á fimmtudeginum vorum við síðan vakin klukkan níu og fengum morgunmat. Síðan var fundinn gamall bolur á mig svo ég gæti hjálpað til við að mála glugga. Er ekki frá því að ég eigi framtíðina fyrir mér í málningarvinnu ef að sagnfræðin borgar sig ekki. Síðan hjálpaði ég til við að gera hádegismat og síðan olíubar ég gluggana... Ekkert smá dugleg! Síðan drifum við okkur til Nykøbing þar sem að Morten var að fara á leiklistaræfingu. Ég setti Friends í spilarann og tókst að sofna. Mjög fersk þegar hann kom síðan heim.

Föstudagurinn var síðan mjög áhugaverður.  Þó ekki væri meira sagt. Litli frændi hans Mortens átti eins árs afmæli og ég var tekin með í afmælisveisluna. Þar fékk maður að hitta alla fjölskylduna, ömmu og afa og alles. Það er í raun sér saga út af fyrir sig. Þið verðið að hringja til að fá hana. Fórum í Føtex á leiðinni heim (sem var víst á Lálandi... gerði mig ekkert smá áttavillta) og keyptum í matinn. Kvöldið fór síðan í vídeógláp yfir nachos og rauðvíni... Bara kósý!

Á laugardeginum var síðan slakað á allan daginn og síðan var mér skutlað á lestarstöðina í Vordingborg. Kom heim um sjöleytið og fékk mér smá rauðvín með Mikkel og Trine. Síðan skellti ég mér yfir á Frankrigsgade kollegiet í partý til Emilie. Svaka stuð á okkur eins og alltaf.

Í gær voru svo nokkrir smiðir í heimsókn, en þeir hurfu þegar ég fór í mat til Emilie þar sem Sanne, Iben og Tine voru með. Mjög kósý hjá okkur.

Í morgun komst ég ekki í skólann þar sem ég þurfti að fara til húðsjúkdómalæknis... bara pirrandi. Annars ætla ég að vera ýkt dugleg að lesa í dag... sem þýðir að ég ætla að hætta þessari vitleysu!

Ciao

Ragga
20. október 2008 klukkan 11:06
Ragnheiđur Bárđardóttir
2 athugasemdir
14október

Kreppa leiđir til vćndis!

Eruði ekki að grínast???

Halli vinur kom í heimsókn á föstudagskvöldið. Það var eiginlega hálfóvænt að hann kíkti þar sem að hann var að fara í innflutningspartý og síðan á Biobar. En hann er alltaf velkominn og mætti rétt áður en ég var að skríða í háttinn. Bauð honum upp á bjór, sem reyndist síðan ekki vera til (kreppa?) en hann þáði cosmopolitan sem að ég blandaði fyrir hann úr einkabirgðunum... já maður er búin að vera að hamstra (djók!). Vitiði af hverju hann kom til mín? Jú, þar sem að fólkið í partýinu sem hann var í nánast lagði hann í einelti fyrir að vera Íslendingur og sagði að hann (og Íslendingar) geti sjálfum sér um kennt?

Þarna varð mér sko nóg boðið! Án gríns! Hvernig í ósköpunum getum við Haraldur haft einhver áhrif á fjármálaþróunina á Íslandi? Bæði búin að vera úti í rúmlega ár og hvorugt að lifa eins og kóngar. Ef eitthvað er er kreppan að koma aðeins minna við okkur en ella þar sem við kunnum að spara og lifa á litlu sem engu! Pæliði í ósanngirninni gagnvart okkur!

SÍNE, Samband íslenskra námsmanna erlendis, má eiga það að þau eru að berjast fyrir okkar málstað, þ.e.a.s. íslenskra námsmanna erlendis og standa sig eins og hetjur! Búin að halda fundi út um allan bæ og stofna síðu á Facebook sem hjálpar okkur að fylgjast með, sýna samstöðu og hvetja hvort annað á þessum leiðindatímum.

Halli sér tvennt í stöðunni eins og er: Fá sér vinnu hérna eða flytja heim. Frekar glataðir möguleikar þar sem hann er hálfnaður með námið sitt hérna úti. Ekki gleyma að við í vinagrúppunni (ég, Halli og Eva) erum öll búin að kynnast ótrúlega mörgu góðu fólki sem eru góðir vinir okkar og komin á fast með Baunum. Skemmtilegt að fara fórna öllu okkar, getum í raun og veru sagt að þetta sé okkar líf hérna úti, fórna því þar sem að einhverjir dúddar eyðilögðu allt! Það ætti að stinga þeim inn og henda lyklinum. Eða senda þá peningalausa til Danmerkur. Enginn er sáttur með þá hérna og ekki er hægt að flytja peninga frá íslenskum reikningum yfir á danska (halló námslán???) og þeir yrðu að fá sér heiðarlega vinnu... Já er sko bara hundfúl út af þessu. Búin að vera hálf þunglynd út af þessu en mamma er svo góð að hún kom mér í betra skap í gær. Ótrúlegt hvað þessar mömmur geta! Hún var nýkomin frá Sevilla með pabba og Akóges þar sem ekkert var verslað, þó splæstur á sig lítill rauðvínsdreitill og bjórsopi af og til... Eða það held ég.

En nóg um kreppu... Ætla sko bara að halda mínu striki og e.t.v. finna mér vinnu (nýbúin að segja hinni upp, muniði) þar sem ég er bara að vinna 2-4 daga í mánuði... Kannski á bar, verð að tékka á þessu.

Var að koma heim úr Thai Bo, já keypti kort í ræktina um daginn og er sko að fara taka á. Tók a.m.k. vel á í dag, var næstum því búin að æla eftir tímann og svimaði ekkert smá, fyrir utan að ég er ennþá eins og tómatur í framan!

Í síðustu viku skellti ég mér til Nykøbing og hafði það kósý með kæró, hann bauð mér út að borða og í bíó á fimmtudaginn, sjúklega kósý! Er að fara í afmæli til frænda hans á föstudaginn (stress) og kannski heim til mömmu hans og pabba á morgun eða hinn (stress, stress, stress)!

Á laugardaginn var Pimps and Hoes partý á kollegiet og ég var hóran Candy... ýkt svöl og ég myndi sko ALDREI mæta svona í partý á Íslandi... hell no, ætla samt að setja inn nokkrar myndir hérna í lokin... eitthvað til að gleðja ykkur í kreppunni!

Payam sem ég er að vinna með var að hringja og spyrja margra skrýtinna spurninga... t.d. hvernig maður segir "ég mun alltaf bíða eftir þér", "ég sakna þín" og "ég elska þig"... Já við erum að fara út að borða á daginn sem ég hætti... allir eiga eftir að sakna mín svo mikið!!!

Adiós... og verið dugleg að kommenta!

Knús

Ragga


Candy að stilla sér upp fyrir myndavélarnar!


Þessa myndirðu ekki þora í í dimmu húsasundi!


Sunnefa sem er með mér í Romerrigets historie, Candy og Liv nágrannakanína.


Sunnefa og Candy suddalega heitar!


Það var farið í "bananaleikinn" þar sem stelpur borða bananann sem strákarnir halda á.


Liv bunny, Morten pimp og Candy.


Tilboð á barnum: Rjómi af brjóstinu á Lolly (Louise) fylgir næstu 5 mínúturnar! (Marc að nýta það)


Coyote Ugly hvað... Vorum með fulla stjórn á barnum!



14. október 2008 klukkan 16:53
Ragnheiđur Bárđardóttir
1 athugasemd
07október

Írisarheimsókn

Góðan daginn.

Ég er komin á þá skoðun að Íslendingar séu fávitar. Sá á Facebook fólk vera að kvarta undan kreppu þar sem að það þurfti að borða steiktar pulsur og eitthvað í þeim dúr í kvöldmat, kallaði það "kreppumat", annar sagðist hafa þurft að borða núðlur og þar með toppað kreppuna. Ég eyðilagði kreppuna fyrir þeim báðum og sagði að þetta kallaðist einfaldlega stúdentamatur. Kannski kominn tími á að fólk reyni loksins að borga upp yfirdráttinn og byrji að spara?

Það er reyndar komið smá "krepputal" hérna, aðallega í sambandi við húsaleigu hjá fólki sem á þannig húsnæði. Gæti hækkað um áramótin og það er verið að segja að Danir þurfi að losa sig við mínusinn á kortunum.

Ég er ekki alveg nógu góð í hagfræði til að skilja ástandið almennilega, en eldra fólk ætti að muna eftir krísu á milli stríðsára og síðan þegar olíukrísan skall á 1973. Þetta á eftir að verða betra á ný, því á eftir dimmustu nóttinni kemur bjartari dagur!

Jæja... nenni samt ekki að spá í þessu, verð eiginlega pínu þunglynd af því. Sérstaklega í ljósi þess að ég er búin að segja upp í vinnunni minni til að einbeita mér að náminu. Ef þetta heldur svona áfram með íslensku krónuna þá eru námslánin mín orðin að engu. En ég lifi ódýrt svo ég býst við að geta lifað á þessu. Annars er bara að finna sér aðra vinnu!

Annars er lítið að frétta. Íris vinkona kom í heimsókn á fimmtudaginn og fór í morgun. Á fimmtudaginn skelltum við okkur aðeins niður í bæ þar sem að kíkt var á Retro og Moose. Á föstudagsmorguninn kom Morten síðan og við skelltum okkur í bæinn til að versla. Ég fann mér peysur og nýtt veski. Væri til í eina hlýja peysu í viðbót, svona fyrir veturinn. Það er orðið pínu kalt og ég ætla sko ekki að byrja að kynda. Kostar 300 krónur á mánuði (sexþúsund íslenskar eins og staðan er núna) sem þýðir að það er mun ódýrara að fjárfesta í kertum, hlýrri peysu og loka glugganum. Hlakka til að fá gert upp við hitaveituna, þar sem ég hef ekki kveikt á ofninum síðan ég flutti inn. Sem þýðir að í augnablikinu skulda þeir mér 2000 krónur (fjörtíu þúsund fyrir ykkur hin) sem muna koma sér mjög vel þegar þær koma í hús.

Föstudagskvöldið fór Morten í partýi með besta vini sínum sem skemmtilega heitir sama nafni og hann. Hann var mjög sáttur með lífið þar sem ég hafði gefið honum bol sem ég plataði Írisi í að kaupa fyrir mig þar sem stendur: "Ég tala ekki íslensku". Snilldarbolur og hann var mjög ánægður og lærði meira að segja að segja hvað stóð á bolnum. Við Íris fórum í Sing-star partý til Emilie bekkjarsystur og síðan var haldið í Hawaii partý uppi í skóla. Sjúklega gaman!

Á laugardagskvöldið eldaði ég svo lasagne og Mia kom í mat. Frekar skondið að ég og Íris vorum þær einu sem hétu ekki neitt með "M", Mia, Morten, Michael og Martin... Fengum okkur smá rauðvín og vorum bara róleg á því.

Á sunnudaginn fór ég svo í vinnuna, þar sem var ekkert að gera. Ég og Vicky náðum að vinna verkefni fyrir skólann hennar og teikna mynd af yfirmanninum okkar, sem ótrúlegt en satt, líktist honum skuggalega mikið! Fengum síðan að loka fyrr svo ég fór heim og horfði á Sex and the City og kúrði þar til Morten kom heim af fundi og þá eldaði ég fyrir hann! Eldamennska af minni hálfu tvö kvöld í röð! Kraftaverkin gerast.

Hann fór síðan heim í gærmorgun og ég fór í skólann í lengsta tíma ever! Frá tvö til átta af Rómarsögu, takk fyrir og gleðileg jól! Pöntuðum reyndar pizzu og kennarinn, Hr. Bang gaf mannskapnum rauðvín. Haffi og Rabbi vinur hans mættu í skólann til mín til að fá leiðbeiningar um hvernig þeir kæmust heim til mín, en þeir fengu að gista í nótt þar sem þeir voru ekki með flug heim, eins og þeir héldu. Þeir buðu upp á rauðvín og bjór og við höfðum það kósý og spiluðum Mayer.

Þremenningarnir voru síðan vaktir í morgun og sendir út á völl. Held þau séu núna einhversstaðar yfir Atlantshafinu, nema að gaurinn sem við Íris hittum á fimmtudaginn hafði rétt fyrir sér, því þá væru þau á suðurleið. Kallinn var sko á því að Ísland væri sunnar en Danmörk!

En allavega, held ég skelli mér til Nykøbing í kvöld þar sem að það er frí í skólanum á morgun og fimmtudag og við erum bara að fara horfa á vídeó á föstudaginn, held ég geti alveg séð myndina heima hjá mér og sofið út! Síðan er vinna á laugardaginn en eftir það er ég komin í haustfrí fram til 20.! Nice!!! Ætla að lesa á fullu og njóta þess að gera gjörsamlega ekki neitt.

En allavega... Hafið það gott og for God's sake, verið pínu jákvæð!

Knús

Ragga

PS. Í lokin nokkrar myndir frá laugardagskvöldinu


Michael og Martin


Mia að pósa fyrir myndavélina


Ég og Mia að prufa að dansa á mismunandi hælum


Mia að skála á íslensku

07. október 2008 klukkan 12:39
Ragnheiđur Bárđardóttir
6 athugasemdir
28september

Klukkuđ af Hrund

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.

Frístundaleiðbeinandi í Vogaseli.

Kynningafulltrúi fyrir fagkynningu.

Barþjónn á Glaumbar.

Sölumaður í ALDO.


2.  Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á.

Sódóma Reykjavík.

Með allt á hreinu.

Stella í orlofi.

Dalalíf.


3. Fjórir staðir sem ég hef búið á.

Reykjavík.

Århus.

Kaupmannahöfn (Amager).

Kaupmannahöfn (Valby).


4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.

Benidorm.

Costa del Sol.

Albufeira.

London.


5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.

Friends.

Desperate Housewives.

Sex and the City.

House.


6. Fjórar síður sem ég skoða daglega.

www.facebook.com
www.mbl.is
www.visir.is
www.punkt.ku.dk


7. Fernt matarkyns sem ég held upp á.

Nautakjöt.

Kjúklingur.

Pizza.

Pasta.


8. Fjórar bækur/blöð sem ég les oft.


Dagbók Anne Frank.

Fylgið okkur.

Síðan mismunandi... yfirleitt fletti ég upp í skemmtilegum og góðum sagnfræðibókum. (Nerd alert!)


9. Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.

New York.

London.

Suður-Ameríka.

Tailand.


10. Fjórir bloggarar sem ég klukka.

María (komin tími á blogg!)

Jóhanna frænka (sama athugasemd og María fékk)

Mamma (því ég veit hún skoðar þetta)

Hrafnhildur (kominn tími til að heyra fréttir)

28. september 2008 klukkan 23:55
Ragnheiđur Bárđardóttir
4 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Ragnheiđur Bárđardóttir
  • Stađur: Kaupmannahöfn
  • Símanúmer: 004550598712
  • Atvinna: Sagnfrćđinemi sem starfar í skóbúđ
  • Hjúskaparstađa: Föst

Ég á MySpace